Viðurkenning til baráttufólks gegn tóbaki
- óskað eftir tilnefningum
Í ár eins og síðastliðið ár ætla Reyksíminn og Lýðheilsustöð að veita viðurkenningu þeim einstaklingi eða hópi sem með baráttuvilja, framsýni og hugrekki hefur lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð þeirra sem heyja baráttu við tóbakið.
Í fyrsta lagi hlýtur viðurkenningu heilbrigðisstarfsmaður eða hópur heilbrigðisstarfsmanna sem hefur unnið sérstaklega við að aðstoða fólk við að hætta að reykja.
Í öðru lagi einstaklingur, t.d. stjórnmálamaður, fréttamaður eða hver sem er annar, sem á opinberum vettvangi hefur unnið sérstaklega að tóbaksvörnum á Íslandi.
Óskað er eftir að tilnefndir séu allir einstaklingar eða hópar sem fólki er kunnugt um og telur eiga skilið að hljóta viðurkenningu fyrir starf sitt að tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð.
Með viðurkenningunum er vakin athygli á því að á Íslandi er fjöldi fólks sem hefur unnið ötullega að tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð, sem á heiður skilið fyrir störf sín.
Tekið er á móti tilnefningum til 31.des.
Vinsamlega sendið tilnefningar til: www.lydheilsustod.is/reyklaus2009 eða www.reyklaus.is. Einnig er hægt að senda tölvupóst til: reyklaus@reyklaus.is.