Fræðslu og upplýsingafundur um heilabilun  18. jan. '10
Fræðslu og upplýsingafundur um heilabilun FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúkra og annarra skyldra sjúkdóma heldur opinn fund í fundarsal Sjúkrahússins á Seyðisfirði laugardaginn 30 janúar 2010 kl. 14.00 Dagskrá: • Svava Aradóttir framkvæmdastjóri FAAS kynnir félgið og framtíðar samstarf. • „Ég hef sögu að segja“ Sigrún Elíasdóttir ungur aðstandandi segir frá • Sigrún Ólafsdóttir hjúkrunarforstjóri kynnir starfsemina • „Af hverju lætur hún mamma svona“, Svava Aradóttir flytur erindi • „Móðir og dóttir – hlutverkaskipti“ , reynsla Steinunnar Ásmundsdóttur aðstandanda • Kaffiveitingar og umræður
Eitt af markmiðum FAAS er að efla fræðslu- og upplýsingastarf á landsbyggðinni og er fundurinn á Seyðisfirði þáttur í því. Stefnt er að stofnun aðildardeildar á Austurlandi og verður sú hugmynd kynnt á fundinum. FAAS hvetur aðstandendur, starfmenn og aðra áhugasama til að mæta og taka þátt í umræðum um málefni fólks með heilabilun.
|