Breytingar á fyrirkomulagi afsláttarkorta SÍ23. mars '10
Eins og þú/þið vonandi vitið hefur fyrirkomulag afsláttarkorta vegna heilbrigðisþjónustu breyst um áramótin hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ).
Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. Þó hefur það verið sent á lögheimili einstaklinga á pappírsformi (A4 formi).
· Frá og með þessari viku verður hætt að senda afsláttarkortið og greiðsluskjöl til einstaklinga á pappír. Kortin og skjölin eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum Réttindagáttina. Nota þarf veflykil skattyfirvalda til að skrá sig inn.
· Einnig er hægt að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu án afsláttar og fá endurgreiðslu frá SÍ sem millifærð er á eigin bankareikning.
· Ef viðskiptavinir geta ekki notað ofangreindar leiðir má nálgast afsláttarkort og greiðsluskjöl með því að hafa samband við þjónustumiðstöð SÍ eða umboð á landsbyggðinni. Sími stofnunarinnar er 515-0000.