Kvenfélagið Lindin á Vopnafirði færði Sundabúð gjöf úr Minningasjóði elliheimilisins, ný borð í borðsalinn Borðin voru smíðuð hjá Miðás á Egilsstöðum og voru höfð í stærðum sem að hentuðu hjólastólum. Eru kvenfélaginu og gefendum minningagjafa færðar kærar þakkir fyrir framlagið.
Litlu jól í Sundabúð12. des. '07
Vistmenn og starfsfólk Sundabúðar á Vopnafirði halda saman litlu jólin fimmtudaginn 13.des. kl.15.00
Allir hvattir til að mæta í borðsal Sundabúðar og eiga saman notalega stund og syngja jólalög . Þeir sem vilja mega koma með eitthvað á kaffiborðið.
Allir íbúar Sundabúðar og starfsfólk velkomið. ... Meira
Starfsmannagrill 200712. sept. '07
Laugardaginn 8. sept var árlegt starfsmannagrill HSA haldið á Vopnafirði. Þar komu saman starfsmenn og fjölskyldur, um 200 manns. Skemmtu sér allir hið enda var óspart gert grín að náunganum. Að ári verður grillið á Fáskrúðsfirði.
Gönguferð starfsmanna á Vopnafirði11. ág. '05
Í sumar fóru starfsmenn Sundabúðar í gönguferð í landi Háteigs, innarlega í Vopnafirði undir leiðsögn Ólafar húsfreyju í Háteigi. Þáttaka var góð og endaði gönguferðin í veglegu kaffisamsæti húsfreyjunnar að góðum íslenskum sveitasið.