Fróðleikur

Stundum er rétti maðurinn í verkið kona.
Pistlar
Ungbarnavernd HSA Egilsstöðum
Hamingjan
Hreyfing
Hollt mataræði
Tóbak
Heilbr. mæðra og barna
Tenglar
Allt um hjartað
Alþjóðahúsið
Barnaverndarstofa
Djúpivogur
doktor.is
Fjarðabyggð
Fljótsdalshérað
FSA
FSN
Landlæknir
Landspítali
Lýðheilsustöð
Opinber þjónusta
SÁÁ
Sjúkraflug
Sjúkratryggingar Ísl.
Starfsendurh. Austurl.
Tryggingastofnun
Uppl. um flensurnar
Vopnafjörður
 
 

Ungbarnavernd HSA Egilsstöðum

Allar fjölskyldur eiga kost á ung- og smábarnavernd.
Hjúkrunarfræðingur hefur samband við fjölskylduna þegar fæðingartilkynning berst stöðinni en æskilegt er að foreldrar hafi samband við heilsugæsluna strax við heimkomu barnsins og láti vita af sér.
Fyrstu vikur eftir heimkomu barnsins kemur ljósmóðir eða hjúkrunarfræðingur stöðvarinnar í vitjanir heim í samráði við  foreldra til að fylgjast með þroska barns og líðan fjölskyldu.

Fastar skoðanir og bólusetningar.
Fastar skoðanir og bólusetningar eru alls tíu talsins. Fyrsta skoðun á stöðinni er við 6 vikna aldur og lýkur með 5 ára skoðun og þroskamati. Boðið er upp á auka skoðanir eftir þörfum.
Skoðanir eru í höndum hjúkrunarfræðinga og lækna stöðvarinnar. Auk þess kemur barnalæknir tvisvar á ári og  er foreldrum nýbura boðinn tími hjá barnalækni hafi það ekki verið skoðað af barnalækni áður. 
Fylgst er reglubundið með vexti og þroska barnsins og fá foreldrar ráðgjöf af ýmsu tagi t.d. varðandi brjóstagjöf, mataræði, tannhirðu, slysavarnir ofl.

Tímasetningar skoðana á Heilsugæslustöðinni
6 vikna skoðun: hjúkrunarfræðingur og læknir.
3 mán. skoðun: hjúkrunarfræðingur og læknir.
Sprauta / kíghósti, barnaveiki, stífkrampi, hib ,mænusótt
5 mán. skoðun: hjúkrunarfræðingur
Sprauta / kíghósti, barnaveiki, stífkrampi, hib ,mænusótt
6 mán. skoðun, hjúkrunarfræðingur og læknir
Sprauta / Heilahimnubólga C.
8 mán. skoðun, hjúkrunarfræðingur
Sprauta / Heilahimnubólga C.
10 mán. skoðun: Hjúkrunarfræðingur og læknir
12 mán. skoðun, hjúkrunarfræðingur.
Sprauta / kíghósti, barnaveiki, stífkrampi, hib ,mænusótt
18 mán. skoðun, hjúkfræðingur og læknir
Sprauta / rauðir hundar, mislingar,hettusótt .
3 ½ árs. skoðun: þroskamat, hjúkfræðingur.
Mál-, fín- og grófhreyfiþroski. Sjónpróf og eyrnaþrýstingsmæling.
5 ½ árs skoðun: þroskamat, hjúkrunarfræðingur.
Fín- og grófhreyfiþroski, sjón-og heyrnarpróf.
Skoðun, læknir.
Sprauta / barnaveiki, stífkrampi og kíghósti.
Einungis er ein nálarstunga í hverri skoðun !

Hvernig á að panta tíma?
Í hverri skoðun er næsti tími gefinn. Innkallað er í 31/2 árs og 51/2 árs skoðanir – þá fá börn og foreldrar bréf með góðum fyrirvara þar sem tíma er úthlutað og gerð grein fyrir því hvað gert er í skoðuninni 

Frekari upplýsingar.
Hafir þú spurningar, þá vinsamlega snúðu þér til Guðbjargar Björnsdóttur hjúkrunarfræðings.  S:470 3000







 

Tilkynningar

23. sept. '10
Erlingur háls-, nef-..

6. okt. '10
Augnlæknir í Neskaup..

6. okt. '10
Augnlæknir í Neskaup..

29. okt. '10
Hjartalæknir í Neska..

Aðalskrifstofa
Neskaupstaður
Seyðisfjörður
Egilsstaðir
Borgarfjörður

Djúpivogur
Breiðdalsvík

Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Reyðarfjörður
Eskifjörður
Vopnafjörður
Bakkafjörður
Gott að vita
Neyðarlínan 112
  Atvinnuumsókn
  Kynningabæklingur HSA
  Hollvinasamtök HSA
  Ársskýrsla 2008
  Skipurit HSA


Heilbrigðisstofnun Austurlands · Sími 470-1400 · Fax 470 1408 · Kt. 610199-2839