|
|
| |
 |
|
Egilsstaðir og Borgarfjörður   |
 Fréttir  Tilkynningar |
Heilsugæslusvið Lagarás 17 - 19, Fax 471 1971 Læknaritari soleyg<hjá>hsa.is Opið alla virka daga frá 8:00-16:00 Sími 470 3000 Vaktsími læknis utan opnunartíma 862 1010 Símaviðtalstími lækna 09:00-10:00 og 13:00-14:00 Símatími hjúkrunarfræðinga alla virka daga nema þriðjudaga frá 11:00 - 12:00 Endurnýjun fastra lyfja alla dag frá 08.30-11:00 í síma 470 3020 Blóðtaka á rannsóknarstofu alla virka daga frá 08:00-12:00 Sjúkrasvið 470 3022 Heimsóknartími alla daga frá 15:00-17:00 eða eftir samkomulagi Sjúklingasími 470 3039 Sjúkraþjálfun sími 470 3033 Heilsugæslusel Borgarfirði eystra Heiðargerði, 720 Borgarfjörður Opið virka daga 08 - 10 nema þriðjudaga Sími 472 9945 heilsabf<hjá>hsa.is Sími hjúkrunarfræðings á Borgarfirði 868 0860 Yfirlæknir Pétur Heimisson petur<hjá>hsa.is Hjúkrunarstjóri Halla Eiríksdóttir heir<hjá>hsa.is
Viltu vita meira?
Upptökusvæði stofnunarinnar er Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur og Borgarfjörður eystri. Hlutverk hennar er að veita íbúum þessara sveitarfélaga og öðrum sem til hennar leita viðeigandi þjónustu.
Heilsugæsla er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00
Vakthafandi læknir sinnir bráðaþjónustu eftir kl. 16:00 virka daga og allar helgar (læknavakt) Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
Læknar Við stöðina starfa þrír sérfræðingar í heimilislækningum tveir í fullu starfi og einn í hlutastarfi ( samtals 2,2 stöðugildi ), einn sérfræðingur í heila- og taugaskurðlækningum í fullu starfi. Frá 01. janúar 2007 starfar við stöðina læknir, sem er í sérfræðinámi í heimilislækningum. Hér starfa auk þess oft læknakandídatar ( það eru læknar með læknapróf og er dvölin á heilsugæslunni liður í að fá lækningaleyfi ).
Bókaður tími hjá lækni er venjulega 20 mínútur. Nauðsynlegt er að panta tíma nema um skyndileg veikindi eða slys sé að ræða. Í áríðandi tilvikum er alltaf hægt að ná til læknis eða hjúkrunarfræðings samdægurs. Læknar eru með símatíma alla daga kl. 09:00 og 13:00. Panta skal símatíma og þá hringir læknirinn til þess sem á pantaðan tíma. Þessi þjónusta er fyrst og fremst til að svara stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Læknar sem og hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar fara í vitjanir til þeirra sem af heilsufarsástæðum geta ekki komið til viðtals á stofu. Oftast sinna læknar vitjunum eftir að skipulagðri stofumóttöku lýkur. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Vaktþjónusta (Læknavakt) Eftir lokun skiptiborðs frá kl. 16:00 svarar vaktlæknir í síma 862-1010 og sinnir bráðaþjónustu.
Hjúkrunarfræðingar Við stöðina starfa hjúkrunarfræðingar, sem sjá um mæðra- og ungbarnavernd, heilsugæslu í skólum, heimahjúkrun fyrir skjólstæðinga heilsugæslustöðvarinnar, almenna heilsuvernd og móttöku sjúkra og slasaðra.
Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga er alla virka daga nema þriðjudag frá kl. 11:00 – 12:00
Aðgerða- og skiptistofa Þar framkvæma læknar og /eða hjúkrunarfræðingar ýmsar smáaðgerðir, sáraskiptingar, og bólusetningar.
Tímapantanir eru daglega frá kl. 8:00-16:00
Ljósameðferð Hægt er að fá ljósameðferð á opnunartíma heilsugæslunnar en til þess þarf tilvísun frá húðsjúkdómalækni.
Rannsóknarþjónusta Rannsóknarþjónusta er alla daga nema föstudaga. Blóðtaka og móttaka sýna er frá kl. 08:00 – 12:00 og er brýnt fyrir fólki að kanna hvort það þurfi að vera fastandi fyrir viðkomandi rannsókn. Þvagsýni þurfa að berast fyrir kl. 10:00 og er morgunþvag ávallt það besta. Lyfjaendurnýjanir Þegar um er að ræða endurnýjanir lyfja sem fólk notar að staðaldri tekur lyfjatæknir við beiðnum í síma 470 3020
Ónæmisaðgerðir fullorðinna Ónæmisaðgerðir fullorðinna, vegna utanlandsferða eða til viðhalds fyrri bólusetningum fara fram á föstudögum kl. 13:30-14:00. Bólusetningar gegn inflúensu eru sérstaklega auglýstar.
Iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun. Beiðni um iðju- eða sjúkraþjálfun þarf að fá hjá lækni og hafa þjálfunaraðilar síðan samband við umsækjanda.
Sjúkradeild Deildin er að mestu leyti öldrunarhjúkrun en einnig eru rými fyrir endurhæfingu, lyflæknissjúkdóma, líknandi meðferð og bráðatilvik.
Engin aðstaða er fyrir svæfingu eða skurðaðgerðir á Egilsstöðum.
Heimsóknartími er alla daga milli kl. 15:00 og 17:00 eða eftir samkomulagi.
Sjúklingasími er 470 3039
Sérfræðingar Komur sérfræðinga eru auglýstar eða þeir sinna eingöngu sjúklingum sem er vísað til þeirra af heimilislæknum eða hjúkrunarfræðingum.
Eftirfarandi sérfræðingar eru auglýstir.
Húðlæknir kemur mánaðarlega
Háls – nef og eyrnalæknir tvisvar á ári
Augnlæknir tvisvar á ári
Kvensjúkdómalæknir á 6 – 8 vikna fresti
Sérfræðingar með tilvísun
Barnalæknir, geðlæknir, og sálfræðingur.
Sjúkraflutningar Tvær sjúkrabifreiðar eru á heilsugæslustöðinni og eru sjúkraflutninga-menn á bakvakt allan sólarhringinn. Gjald fyrir sjúkraflutninga er innheimt af Rauða Kross Íslands og fá viðkomandi reikning frá þeim.
Sjúkraflugvél er staðsett á Akureyri og er viðbragstími hennar um það bil 90 mínútur.
|
|
| |
|
|