Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) varð fyrst íslenskra heilbrigðisstofnana til að innleiða hollenska hugmyndafræði um jákvæða heilsu. Skrifað hefur verið undir samninga þess efnis milli HSA, þriggja austfirskra sveitarfélaga og Institute for Positive Health.
Institute for Positive Health í Hollandi hefur undanfarin ár þróað hugmyndafræðina um jákvæða heilsu sem HSA hefur tekið upp í samstarfi við Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað og Seyðisfjarðarkaupstað. Með hugmyndafræðinni er að vissu leyti snúið við ríkjandi hugsun í heilbrigðisþjónustu sem einblínir oft á skyndilausnir við óþægindum og einstaklingurinn skilgreindur sem sjúklingur.
Í staðinn er horft á einstaklinginn sjálfan og almenna líðan hans út frá sex meginstoðum: Andlegri heilsu, tilgangi í lífinu, daglegri virkni, félagslegri þátttöku lífsgæðum og líkamlegri getu. Út frá þessu mati er einstaklingum vísað á viðeigandi úrræði, sem oft eru hvorki frekari læknismeðferð né lyfjagjöf. Greinargóð umfjöllun um hugtakið Jákvæða heilsu er hægt að nálgast á vefsíðu www.velvirk.is.
Guðjón Hauksson, forstjóri HSA, segir bæði ógnvekjandi og spennandi að vera fyrst íslenskra stofnana til að taka upp hugmyndafræði jákvæðrar heilsu en vonar að innleiðingin gangi vel þannig að HSA verði fyrirmynd annarra heilbrigðisstofnana. Á haustmánuðum 2020 hélt Institute for Positive Health fræðslu fyrir starfsmenn HSA þar sem m.a. var fjallað um hvernig HSA getur tileinkað sér aðferðafræðina í daglegu starfi stofnunarinnar.
Mynd frá undirritun samningsins
Með því að fylla út í heilsuhjólið má fá nokkuð góða innsýn í það hvort líf okkar sé í góðu jafnvægi og hvort þörf sé á að vinna með eitthver svið. Hjólið er fyllt út á þann hátt að merkt er við á vefnum hvar við erum stödd fyrir hvert svið. Ef við værum í fullu jafnvægi með öll sviðin værum við að merkja alls staðar við ysta hringinn en það gerist hjá fæstum. Þegar búið er að merkja á hjólið stöðu okkar hvað varðar öll sviðin getum við skoðað hvaða svið okkur finnst við þurfa helst að vinna með og þá er mikilvægt að hafa í huga að við þurfum ekki endilega að vinna með það svið sem skora lægst heldur frekar það sem okkur finnst mest þörf á að bæta.
Smellið á myndina fyrir betri upplausn.