Hollt mataræði  
Hollt mataræði
Sumir halda að hollt fæði sé einhliða og ólystugt. Það er mesti misskilningur. Úrvalið af hollum mat er svo mikið að allir geta valið hann eftir smekk. Manneldismarkmið okkar Íslendinga miða að því að auka grænmetis- og grófmetisneyslu en minnka notkun mettaðrar fitu, sykurs og salts. Ráðleggingar um hollt mataræði fyrir fullorðna og börn frá 2 ára aldri eru í grófum dráttum þessi: grænmeti og ávextir daglega, samtals 5 skammtar á dag. fiskur - helst tvisvar í viku eða oftar- það er fyrir utan fiskálegg og salöt úr fiskmeti. gróf brauð og annar kornmatur, t.d. velja brauð úr heilhveiti eða grófara mjöli í stað hveitis fituminni mjólkurvörur. Tvö glös, diskar eða dósir af mjólk eða mjólkurmat á dag. Best er að velja fitulitlar og lítið sykraðar vörur. Ostur getur komið í stað mjólkurvara að hluta til, 25g af osti jafngilda einu glasi eða diski af mjólkurvörum. Þeir sem ekki velja mjólk geta valið kalkbætta sojamjólk og aðrar kalkbættar vörur eða tekið kalktöflur. salt í hófi lýsi eða annar D-vítamíngjafi Fita og feitar matvörur í hófi og fremur valin olía eða mjúk fita en hörð fita á borð við smjörlíki eða smjör.
Hér eru einnig nokkrar einfaldar leiðbeiningar til að draga úr fitu, nota hollari fitu, auka trefja- og næringarinnihald fæðunnar. # Skiptið hluta af hveitinu út fyrir heilhveiti eða annað gróft mjöl. # Notið eplamauk að hluta í stað feiti í bakstur – það gefur deiginu mýkt og fyllingu. # Notið matarolíu í stað smjörlíkis – 0,8 dl af matarolíu koma þá í stað 1 dl af smjörlíki. Fitan verður mýkri fyrir vikið og æskilegri fyrir blóðfituna en kaloríurnar þó óbreyttar. # Léttmjólk getur oft komið í stað rjóma við matargerð. # Veljið fituminna kjöt – t.d. flest fuglakjöt, 8-12 % hakk, gúllas, hryggvöðva (ekki hrygg), og fitusnyrt kjöt. # Aukið hlut grænmetis með öllum máltíðum, borðið ávexti á milli mála og veljið oftar trefjaríkt grófmeti – það veitir fyllingu og er saðsamt. # Mikilvægt er að prófa sig áfram og breyta smátt og smátt – til dæmis er gott að draga hægt og rólega úr magni sykurs og feiti í uppskriftum með því að draga lítillega úr magninu á milli skiptanna sem bakað er – þannig finnið þið síður fyrir breytingunum og venjist nýja bragðinu. Vatn, vatn, vatn og aftur vatn! Vatn er besti svaladrykkurinn sem völ er á og við erum svo heppin að geta drukkið þennan lífselexír beint af krana hér á landi. Vökvaþörf okkar er um 2-2,5 l á dag og vatn er besti valkosturinn. Munið að áfengi og drykkir sem innihalda koffein s.s. kaffi, te og gosdrykkir eru ekki góðir vatnsgjafar þar sem þeir eru þvagdrífandi og ýta undir vatnstap úr líkamanum. Á heilsugæslustöðvum er til fjöldinn allur af bæklingum og fræðsluefni um hollt mataræði. Ef þú hefur áhuga á að fá nánari upplýsingar, leitaðu á þína heilsugæslustöð.
Starfsfólk Heilsugæslustöðvar Seyðisfjarðar
heimild: Lýðheilsustöð
|