Heilbr. mæðra og barna  
Árið 2005 var alþjóða heilbrigðisdagurinn tileinkaður heilbrigði mæðra og barna. Í ljósi þessarar yfirskriftar er ekki úr vegi að huga að mikilvægi þess að undirbúa komu nýs einstaklings sem best, þar geta síðustu vikur fyrir getnað skipt máli ekki síður en fyrstu vikur meðgöngu. Rannsóknir hafa leitt í ljós að ef konur taka 400 míkrógrömm af B-vítamíninu fólasín í 4 vikur fyrir meðgöngu og fyrstu 12 vikur sjálfrar meðgöngunnar, minnka líkur á alvarlegum fósturgöllum á miðtaugakerfi, einkum klofnum hrygg, um meira en helming. Þar sem þessir fósturskaðar verða í byrjun meðgöngu, jafnvel áður en konan veit að hún er barnshafandi, er mikilvægt að allar konur sem undirbúa barneignir eða geta orðið barnshafandi, taki fólasín eða borði fólasínríkt fæði. Í bæklingi sem gefinn hefur verið út og nefnist Fólasín skiptir máli fyrir konur eru allar konur sem undirbúa barneignir eða geta orðið barnshafandi því hvattar til að taka fólasín.
Fólasín er eitt af B-vítamínunum og oft nefnt fólinsýra eða fólín. Mest er af vítamíninu í grænmeti, ávöxtum, grófu brauði og vítamínbættu morgunkorni. Nauðsynlegt er að borða meira af grænmeti og ávöxtum en gert er hér á landi, eða um 500 gr á dag. Það samsvarar tveimur ávöxtum og 200 gr. af grænmeti. Þar sem dagleg fæða inniheldur í fæstum tilfellum nægilegt magn af fólasíni, er talin ástæða fyrir konur að tryggja sig frekar og taka 400 míkrógrömm á dag af fólasíni í tengslum við meðgönguna. Þessi bæklingur er til á flestum heilsugæslustöðvum og þeir sem hafa áhuga á geta fengið hann þar. Einnig er hægt að skoða bæklinginn á netinu: http://www.lydheilsustod.is/media/manneldi/fraedsla/Folat_baeklingur.pdf
Stöðugt þarf að vera vakandi fyrir öryggi barna sama hvar á landinu við búum. Nú þegar vorar fer að bera meira á að börn séu á hjólum og að leika sér úti. Mikilvægt er að skapa aukið öryggi með því að ung börn séu ekki á hjóli úti í umferðinni og að foreldrar sjái til þess að þau noti hjálma. Við fullorðna fólkið, alla vega sumir, þurfum að velta vel fyrir okkur aksturslagi okkar. Virðum hraðatakmarkanir og verum meðvituð um mikilvægi þess að keyra hægt í íbúðagötum þar geta börn verið að leik og skyndilega hlaupið út á götu. Borið hefur á því að börn séu ekki í öryggisbeltum, þau verið í framsæti bíla og jafnvel setið með þau undir stýri. Slíkt er ekki ásættanlegt, lítum hver í eigin barm og látum ekki slíkt sjást til okkar. Það sem hér er sett á blað er aðeins brot af því sem sem vert er að huga að. Slys eða veikindi eins einstaklings í fjölskyldu hefur áhrif á alla fjölskylduna. Tryggjum sem best heilbrigði og öryggi allra. Lifum heil. Starfsfólk heilsugæslunnar Seyðisfirði.
|